Fjölþætt heilsurækt 65+ í Hafnarfirði
Ásvellir, Hafnarfjörður 220, Iceland Lára Janusdóttir Janus heilsuefling-
Where Hafnarfjörður,
Iceland -
When Event Start
Fjölþætt heilsurækt 65+ í Hafnarfirði – Heilsuefling fyrir eldri aldurshópa. er samstarfsverkefni Hafnarfjarðarbæjar, Janusar heilsueflingar, Félags eldri borgara í Hafnarfirði og Íþróttabandalags Hafnarfjarðar og er liður í áherslu sveitarfélagsins að hvetja og efla íbúa bæjarins til hreyfingar og hollra lífshátta. Eitt af megin markmiðum þessa heilsueflingar- og rannsóknarverkefnis er að bjóða upp á fjölþætta heilsuræktarþjálfun í eitt og hálft ár, með áherslu á þol- og styrktarþjálfun auk fræðsluerinda um heilsu og velferð. Jafnframt er stefnt að því að kanna afkastagetu, daglega hreyfingu og hreyfifærni eldri aldurshópa í Hafnarfirði í upphafi verkefnisins og síðan á 6 mánaða fresti. Þá viku sem Hreyfivika UMFÍ stendur yfir þá er hópurinn í þolþjálfun í fjrálsírþóttahöllinni í Hafnarfirði á mánudögum og svo styrktarþjálfun þri-fös hjá Reebok Fitness við Ásvallalaug í Hafnarfirði.