Monday May 23 2016

HreyfiSelfie leikur

Hrísey, Hrísey 630, Iceland Ingólfur Sigfússon Ungmennafélagið Narfi
  • Where Hrísey,
    Iceland
  • When Event Start

HreyfiSelfie leikur er hugmynd sem við sáum að var á Hólmavík í síðustu Hreyfiviku. Okkur fannst hugmyndin góð og ætlum því að prófa þennan leik í Hrísey í ár. HreyfiSelfie er skemmtilegur leikur til að taka þátt í með fjölskyldu og vinum Hreyfivikuna 23.-29. maí. Hér að neðan er listi af staðsetningum og á hverri staðsetningu á að taka ákveðna mynd. Myndinni á síðan að deila með því að merkja Ungmennafélagið Narfi, Hrísey á facebook og gera #minhreyfing. Markmið leiksins er að hreyfa sig og hafa gaman. 1.Upp á háborði með sólskinsbros. 2. Í ræktinni að hnykla vöðvana. 3. Við hliðið í hlaupaskóm. 4. Stund milli stríða í ringó eða frisbí. 5. Með blautt hár eftir sundferð. 6. Í loftinu fyrir ofan ærslabelginn. 7. Með hjálm á reiðhjóli. Það má svo að sjálfsögðu merkja fleiri myndir með #minhreyfing Góða skemmtun - gleðilega Hreyfiviku! https://www.facebook.com/umfnarfi/